Finnst þér stundum eins og stafræna lífið sé farið að stjórna þér frekar en þú því? Langar þig að fá betri yfirsýn og ná meiri stjórn, en veist ekki hvar best er að byrja? Hvað ef bókasafnið gæti hjálpað þér að skilja þessi ósýnilegu kerfi sem móta stafrænt daglegt líf okkar og stutt þig í að endurheimta stjórn á tíma þínum og gögnum ?
Komdu með símann þinn, spurningarnar, reynsluna og jafnvel gremjuna og taktu þátt í Mjúku neti, vikulegum samverustundum þar sem við lærum saman og hvert af öðru. Þátttakendur miðla eigin þekkingu og reynslu, ásamt sérfræðingum í öryggi farsíma og textíllistafólki sem vinnur með skemmtilega hugmynd um svefnpoka fyrir síma.
Saman skoðum við persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir forrita og hin mörgu huldu lög stafrænnar sjálfsmyndar sem verða til þegar tæknikerfi túlka hegðun okkar. Við rýnum meðal annars í hvernig stafrænir miðlar draga ályktanir um áhugamál, venjur og þarfir og hvernig slíkar upplýsingar hafa áhrif á það sem við sjáum, lesum og upplifum á netinu.
Taktu með þér efnisbút sem vekur góðar minningar til að nota í ytra lag svefnpokans. Við útvegum Faraday-efnið, sem lokar fyrir merki og myndar innra lag pokans. Engin fyrri reynsla af saumaskap er nauðsynleg.
Alla miðvikudaga frá 21. október til 9. desember kl. 16–18 í Borgarbókasafninu Grófinni.
Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjórn | Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is
Mjúkt net - vikulegar samfélagsstundir
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
mið 21. okt 2026 16:00
Bústaðu viðburðinn!