Móðurást: Lausnargjaldið - Útgáfuhóf!
Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Kort
mið 21. okt 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Þér er boðið í útgáfuhóf!
Í tilefni útgáfu bókarinnar Móðurást: Lausnargjaldið eftir Kristínu Ómarsdóttur verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins miðvikudaginn 21. október kl. 17:00.
Höfundur les upp og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Um bókina:
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur þar eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.