MÖNTRUKVÖLD Í LÍFSPEKIFÉLAGINU
Lífspekifélagið, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík Kort
fim 26. nóv 2026 20:00
Velkomin á möntrukvöld í Lífspekifélaginu þann 26. nóvember kl. 20:00.
Eftir útgáfu plötunnar MÖNTRUR langar mig að bjóða okkur að koma saman á ný. Að fagna tónlistinni, ferðalaginu sem við höfum gengið saman og þeirri samveru sem hefur yljað okkur í gegnum árin.
Það skiptir engu máli hvort þú hefur komið áður eða ert að stíga inn í þetta rými í fyrsta sinn. Þú ert hjartanlega velkomin, velkominn eða velkomið.
Í þetta sinn verður hljómsveitin:
Lára Rúnars – harmonium og gítar
Arnar Gíslason – slagverk
Guðni Finnsson - bassi
Við hefjum kvöldið á bolla af seremóníal kakói frá Perú og leyfum okkur síðan að sökkva inn í möntrur, tónlist og sameiginlega nærveru.
Miðverð: 6.900.-
Skráning fer fram hér:
https://heima.moarstudio.is/vidburdir/
Eða í gegnum moar@moarstudio.is
Við hlökkum innilega til að vera með ykkur aftur.
Lára & co 🤍
Ljósmynd: Kolbrún Nadira