Morgunmálþing Rauða krossins: Að tengjast er að tilheyra

Morgunmálþing Rauða krossins: Að tengjast er að tilheyra

Rauði krossinn á Íslandi, Efstaleiti 9, 103 Reykjavík Kort

fös 9. okt 2026 08:30

Bústaðu viðburðinn!

Að tengjast er að tilheyra
Um einmanaleikafaraldurinn – og hvað við getum gert við honum

Einmanaleiki hefur áhrif á fólk á öllum aldri og er sífellt meira viðurkenndur sem mikilvægt lýðheilsumál.

Í tilefni af Viku einmanaleikans býður Rauði krossinn á Íslandi til morgunmálþings þar sem sérfræðingar og fulltrúar Rauða krossins fjalla um áhrif einmanaleika og leiðir til að efla tengsl, þátttöku og samfélag.

Föstudagurinn 9. október 2026
Kl. 8:30–10:00
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík

Á dagskrá:

Einmanaleiki er lýðheilsumál
Sigrún Daníelsdóttir, teymisstjóri geðræktar á lýðheilsusviði embættis landlæknis.

Vaxandi upplifun ungmenna af einmanaleika
Kynning á niðurstöðum grunn- og framhaldsskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.

Einmanaleiki – meira en félagsleg samskipti
Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, fjallar um einmanaleika og þær ólíku birtingarmyndir sem hann getur tekið á sig.

Saman gegn einmanaleika
Alda Björk Harðardóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, fjallar um hvernig heimsóknarvinir, gönguvinir, hundavinir og símavinir geta bætt líðan fólks og orðið mikilvæg grunnstoð í viðbrögðum samfélagsins við þeim lýðheilsuvanda sem einmanaleiki er.

Stuðningur þegar mest á reynir
Sandra Björk Birgisdóttir, verkefnastjóri Hjálparsímans 1717, fjallar um Hjálparsímann sem öryggisnet sem grípur fólk þegar erfiðleikar steðja að og veitir stuðning þegar mest á reynir.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna á hverjum degi að því að rjúfa félagslega einangrun og skapa tengsl sem skipta máli. Vertu með: https://www.raudikrossinn.is/sjalfbodastorf/umsokn-um-sjalfbodastarf/

Á morgunmálþinginu rýnum við í stöðuna á Íslandi, heyrum nýjustu rannsóknir og ræðum hvað við getum öll gert til að stuðla að aukinni samkennd og samfélagslegri þátttöku.

Fundarstjóri er Dóra Björt Guðjónsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu

Rjúkandi kaffi og léttar morgunveitingar í boði.

Húsið opnar kl. 8.30 en formleg dagskrá hefst klukkan 9.00.

Öll hjartanlega velkomin.