Morgunmálþing Rauða krossins í Viku einmanaleikans: Að tengjast er að tilheyra

Morgunmálþing Rauða krossins í Viku einmanaleikans: Að tengjast er að tilheyra

Rauði krossinn á Íslandi, Efstaleiti 9, 103 Reykjavík Kort

fös 9. okt 2026 08:30

Bústaðu viðburðinn!

Að tengjast er að tilheyra

Um einmanaleika, tengsl og hvernig við getum tekið höndum saman til að bæta líðan fólks.

Einmanaleiki hefur áhrif á fólk á öllum aldri og er sífellt meira viðurkenndur sem mikilvægt lýðheilsumál. Í tilefni af Viku einmanaleikans býður Rauði krossinn á Íslandi til morgunmálþings þar sem sérfræðingar og fulltrúar Rauða krossins fjalla um áhrif einmanaleika og leiðir til að efla tengsl, þátttöku og samfélag.

📅 Föstudagurinn 9. október 2026

🕣 Kl. 8:30–10:00

📍Efstaleiti 9, 103 Reykjavík

Á dagskrá:

🔹 Einmanaleiki er lýðheilsumál

Sigrún Daníelsdóttir, teymisstjóri geðræktar á lýðheilsusviði embættis landlæknis.

🔹 Vaxandi upplifun ungmenna af einmanaleika

Kynning á niðurstöðum grunn- og framhaldsskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.

Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.

🔹 Einmanaleiki – meira en félagsleg samskipti

Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands, fjallar um einmanaleika og þær ólíku birtingarmyndir sem hann getur tekið á sig.

🔹 Saman gegn einmanaleika

Alda Björk Harðardóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, fjallar um hvernig heimsóknarvinir, gönguvinir, hundavinir og símavinir geta bætt líðan fólks og orðið mikilvæg grunnstoð í viðbrögðum samfélagsins við þeim lýðheilsuvanda sem einmanaleiki er.

🔹 Stuðningur þegar mest á reynir

Sandra Björk Birgisdóttir, verkefnastjóri Hjálparsímans 1717, fjallar um Hjálparsímann sem öryggisnet sem grípur fólk þegar erfiðleikar steðja að og veitir stuðning þegar mest á reynir.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna á hverjum degi að því að rjúfa félagslega einangrun og skapa tengsl sem skipta máli. Vertu með: https://www.raudikrossinn.is/sjalfbodastorf/umsokn-um-sjalfbodastarf/

Á morgunmálþinginu rýnum við í stöðuna á Íslandi, heyrum nýjustu rannsóknir og ræðum hvað við getum öll gert til að stuðla að aukinni samkennd og samfélagslegri þátttöku.

Fundarstjóri er Dóra Björt Guðjónsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu

☕ Léttar morgunveitingar í boði.

Húsið opnar kl. 8.30 en formleg dagskrá hefst klukkan 9.00.

Öll hjartanlega velkomin.