Morgunstund í myndlæsi
Gerðarsafn Kópavogur Art Museum, Hamraborg 4-6, 200 Kópavogur Kort
fös 9. okt 2026 11:00
Bústaðu viðburðinn!Morgunstundir í myndlæsi hefjast á ný 9. október!
Fyrsti viðburðurinn er föstudaginn 9. október kl. 10:00 í Gerðarsafni, þar sem við tökum fram óvænt verk úr safneign Gerðarsafns og greinum það í sameiningu. Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri safneignar í Gerðarsafni, leiðir samræðurnar, sem gestir taka þátt í.
Viðburðurinn er á íslensku
Morgunstund í myndlæsi er viðburðaröð fyrir fullorðna í Gerðarsafni þar sem farið verður eftir aðferðum Sjónarafls. Sjónarafl er kröftugt fyrirmyndarverkefni Listasafns Íslands sem snýr að þjálfun myndlæsis fyrir börn í tengslum við námsskrá skólanna. Með því að nota þær aðferðir sem kynntar eru í Sjónarafli fá þátttakendur lykla sem auðveldar þeim að njóta myndlistar.
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og það verður heitt á könnunni.
Verkefnið er stutt af Safnasjóði
Dagskrá morgunstunda 2026 er eftirfarandi:
9. október - 10:00 - 11:00
23. október - 10:00 - 11:00
6. nóvember - 10:00 - 11:00
20. nóvember - 10:00 - 11:00
4. desember - 10:00 - 11:00