MUCKY MUCK X FRÝS Á LEMMY
Lemmy, Austurstræti 20, 101 Reykjavík Kort
lau 3. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Mucky Muck, ásamt Frýs, halda tónleika á LEMMY laugardaginn 3. október. Tónleikarnir hefjast kl 20:00.
Frýs stíga fyrst á svið en þau eru íslensk hljómsveit sem sérhæfir sig í klassísku og psychedelcic rokki. Hljómsveitin var stofnuð í Reykjavík árið 2022 en tveimur árum síðar tóku þau þátt í Músíktilraunum þar sem þau hlutu titilinn Hljómsveit fólksins!
Mucky Muck er íslensk gruggrokksveit sem var stofnuð í Vestmannaeyjum árið 2023. Sveitin gaf út sína aðra breiðskífu, Seeds, í sumar og hefur fyrsti singúll plötunnar fengið góðar undirtektir og verið í reglulegri spilun á X-inu.
Mucky Muck hafa komið víða fram og eru meðal annars orðnir fastagestir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í ár komu þeir fram fjórum sinnum á hátíðinni, bæði á Stóra sviðinu og Tjarnarsviðinu, þar sem þeir eru þekktir fyrir að færa rokkið inn í Herjólfsdal og hafa hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína.
Á LEMMY ætla þeir hins vegar að slá á strengi nostalgíunnar en þeir ætla að taka þekkta rokk slagara frá 90’s og 2000’s tímanum. Mucky Muck stíga á svið kl 21:00!
20 ára aldurstakmark!
Það er FRÍTT INN!