Náðu forskoti á tímum framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI)

Náðu forskoti á tímum framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI)

Smárabíó, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Kort

fim. 17.09.2026 13:00

ISK 29900.00
Miðar / Skráning
ISK 29900.00
Miðar / Skráning

Reykjavik Internet Marketing Conference 2026

Náðu forskoti á tímum framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI)

Tryggðu þér miða á forsöluverði!

Forsöluverð til og með 17. ágúst 2026 er 29.900 kr.

Almennt miðaverð er 39.000 kr.

RIMC 2026 er ómissandi viðburður fyrir alla sem vinna við eða hafa áhuga á stafrænni markaðssetningu og sýnileika á netinu. Í ár beinum við sjónum að því hvernig hægt er að ná samkeppnisforskoti í heimi framkvæmandi gervigreindar (e. Agentic AI).

Við skoðum hvernig markaðsumhverfið er að færast frá því að elta smelli og umferð, yfir í að hámarka líkurnar á að vera valin þegar gervigreind er farin að taka ákvarðanir fyrir hönd neytenda.

Frá stofnun árið 2004 hefur RIMC ekki bara verið hefðbundin markaðsráðstefna, heldur vettvangur þar sem við fáum staðfestingu á því hvert stafræn samskipti stefna. Dagskráin í ár er skipuð öflugum fyrirlesurum úr alþjóðlega og íslenska markaðsumhverfinu, með hagnýtum dæmum frá fyrirtækjum á borð við IKEA, Sprell, FINDS og Yoast.

Við kynnumst ferskum hugmyndum og praktískum lausnum í heimi þar sem sýnileiki framtíðarinnar mun ráðast af gæðum gagna fremur en snjöllum slagorðum.

Að lokinni dagskrá býðst þátttakendum að njóta léttra veitinga á Happy hour og skerpa tengslin.

Tryggðu þér miða á forsöluverði: https://tix.is/event/21680/nadu-forskoti-a-timum-framkvaemandi-gervigreindar-e-agentic-ai

Flytjendur