Naflahlaupið 2025

Naflahlaupið 2025

Midgard Base Camp, Dufþaksbraut 14, 860 Hvolsvöllur Kort

lau. 29.08.2026 11:00

Naflahlaupið verður 29. ágúst nk.

Hlaupið hefst og endar við Midgard Base Camp.

Kl 11:00 Jón Gísli ræsir lengri hringinn sem er í kringum 15km.

Kl 11:30 Jón Gísli ræsi styttri hringinn sem er í kringum 7,5 km.

Brautirnar verða merktar að hluta en við biðjum hlaupara um að kynna sér leiðirnar - þær verða settar inn hér í pósti fyrir neðan.

Upphitun hefst 5mín fyrir hlaup.

Léttar veitingar verða í boði þegar komið er í markið.

Verðlaun fyrir 1. sæti í karla og kvennaflokki í Naglahringnum er 15.000kr inneign á veitingastað Midgard Base Camp.

Þetta árið ætlum við að hlaupa fyrir Björgunarsveitina Dagrenningu. Ekkert þáttökugjald er í hlaupið en frjáls framlög eru vel þegin og fara þau óskert til Björgunarsveitarinnar. Björgunarsveitin verður með bauk og posa á svæðinu.

Naflahlaupið var fyrst haldið sumarið 2010. Nafnið er vísun til þess að um nafla alheimsins sé að ræða en það ár beindust allra augu að þessu svæði vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Naflahlaupið var viðleitni einstaklinga til að sýna fram á að þrátt fyrir allt væri öllu óhætt á þessu svæði, í Naflanum væri hreint og tært loft og góðar aðstæður til útivistar.

Allur ágóði hlaupsins hefur runnið óskiptur til marga góða málefna.

2010 rann ágóðinn til Leikskólans Arkar.

2011 rann ágóðinn í starfsemi sjúkraflutinga á Hvolsvelli.

2012 rann ágóðinn til unglingadeildar Dagrenningar.

2013 rann ágóðinn til Grunnskólans á Hvolsvelli.

2014 rann ágóðinn til Kirkjuhvols á Hvolsvelli.

2015 rann ágóðinn til Lundar á Hellu.

2016 rann ágóðinn renna til unglingadeildar flugbjörgunarsveitar Hellu.

2017 rann ágóðinn til heilsugæslustöðvar Hvolsvelli til tækjakaupa.

2018 rann ágóði til fjölskyldu Kristínar Halldórsdóttur

2019 Allur ágóði og skráningargjöld Naflahlaupsins í ár renna til fjölskyldu Ólafar Bjarnardóttur.

2022 Björgunarsveitin Dagrenning.

2023 Björgunarsveitin Dagrenning

2024 Björgunarsveitin Dagrenning