Námskeið í skotthúfuprjóni (Herrahúfa)
Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6A, 200 Kópavogur Kort
lau 19. sep 2026 11:30
Guðný Ingibjörg leiðir vinnustofu í skotthúfu herra. Mikilvægt er að þátttakendur hafi grunnþekkingu í prjónaskap.
Skólapiltar á Hólum og í Skálholti báru skotthúfur, sem ungar konur tóku að prjóna og nota sjálfar með lengri skúf. Þar með varð skotthúfan órjúfanlegur hluti íslenska þjóðbúningsins, bæði fyrir karla og konur.
Þátttaka á námskeiðinu kostar 8.900kr. - eða 6.900kr. fyrir handhafa hátíðarpassa.
Prjónar, uppskrift og band innifalið í námskeiðisgjaldi.
Athugið að takmarkað pláss er á námskeiðið og skráning er nauðsynleg.
Hlekkur á skráningu: https://forms.gle/yEkvNUED1LTQFbv27
VAKA þjóðlistahátíð fer fram dagana 13.– 19. september 2026 í Kópavogi. Á hátíðinni mætast tónlist, dans, handverk, sagnalist og kveðskapur í fjölbreyttri dagskrá fyrir forvitna gesti á öllum aldri. VAKA leggur áherslu á að gera sem flestum kleift að sækja viðburði hátíðarinnar. Því eru í boði þrír mismunandi verðflokkar á flesta viðburði og velur hver gestur það verð sem hentar best. Tryggið ykkur hátíðarpassa sem veitir ykkur aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.
Nánar um hátíðarviku:
https://www.facebook.com/events/2881917765475464