Námskeið | Teikning í Listasafni Einars Jónssonar ✍🏼
Listasafn Einars Jónssonar, Hallgrímstorg 3, 101 Reykjavík Kort
fim 15. okt 2026 17:15
Bústaðu viðburðinn!Teikning í Listasafni Einars Jónssonar
Námskeið fyrir fullorðna
Á þessu námskeiði fá þátttakendur tækifæri til að kynnast myndheimi listamannsins Einars Jónssonar. Allt frá rýminu sjálfu – stærstu höggmyndinni – til einstakra verka sem veita innblástur að teikningu.
Rýmið og áhrif þess spila stórt hlutverk þar sem dvalið er í sýningarsölum safnsins sem eitt sinn var einnig vinnustofa og heimili listamannsins. Áhersla verður lögð á flæði og skapandi teikniaðferðir. Unnið verður með grunnþætti teikningarinnar; form, línur og hreyfingu.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja dýpka færni sína í teikningu. Allt efni á staðnum
👩🏼🎨 Kennari: Margrét H. Blöndal, myndlistarmaður
Námskeiðið er þrjú kvöld og kennsla fer fram:
15. október, kl. 17:15 - 19
22. október, kl. 17:15 - 19
29. október, kl. 17:15 - 19
💳 Verð: 35.000 kr.
Ath. takmarkað sætapláss.
🔗 Nánari upplýsingar og skráning:
https://www.abler.io/shop/frirvk/listasafn/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NjYzMDk=?