Náttúruvísindi sem virka á miðstigi
þri 27. okt 2026 14:15
Bústaðu viðburðinn!Hvernig kveikjum við áhuga barna á náttúruvísindum og byggjum upp traustan skilning? Á námskeiðinu kynnumst við kennsluaðferðum sem skila árangri á miðstigi.
Fjallað verður um samspil fræðilegrar umfjöllunar, verklega athugana og tilrauna við hugmyndir nemenda um náttúrufyrirbæri og leiðir til að efla vísindalæsi og virkni í kennslustofunni.
Þátttakendur fá hagnýtar hugmyndir sem má yfirfæra í eigin kennslu.
Umsjón: Haukur Arason, dósent í eðlisfræði og náttúrufræðimenntun og Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor í líffræði
Kortlagning sýnir að um 22% þeirra sem kenna náttúrugreinar á miðstigi og 27% á unglingastigi eru með sérhæfingu í greininni.
• Könnun MMS meðal unglingastigskennara og vinna starfshóps MMS benda m.a. á þörf fyrir stuðning við fag- og hugtakaskilning, verklega kennslu og rannsóknarvinnu, vísindalæsi og gagnatúlkun og kennslu fjölbreyttra nemendahópa.
Í könnun um sérhæfingu kennara kemur líka fram mikill landfræðilegur munur og að hlutfall kennara með náttúrufræðisérhæfingu er sérstaklega lágt á Suðurlandi og Austurlandi.
Námskeiðið, Náttúruvísindi sem virka á miðstigi, er byggt upp til að leggja sitt á vogarskálarnar, til að svara þessari þörf.