Náttúruvísindi sem virka á unglingastigi
þri 3. nóv 2026 14:15
Bústaðu viðburðinn!Hvernig getum við skipulagt öfluga náttúruvísindakennslu sem vekur áhuga ungmenna og styður dýpri skilning? Á námskeiðinu verður sjónum beint að kennsluaðferðum sem skila árangri á unglingastigi.
Fjallað verður um samspil fræðilegrar umfjöllunar, verklega athugana og tilrauna við hugmyndir nemenda um náttúrufyrirbæri og leiðir til að efla vísindalæsi og virkni í kennslustofunni.
Þátttakendur fá hagnýtar hugmyndir sem má yfirfæra í eigin kennslu.
Sjá nánar og skráning á menntaflettan.is
---
Kortlagning sýnir að um 22% þeirra sem kenna náttúrugreinar á miðstigi og 27% á unglingastigi eru með sérhæfingu í greininni.
• Könnun MMS meðal unglingastigskennara og vinna starfshóps MMS benda m.a. á þörf fyrir stuðning við fag- og hugtakaskilning, verklega kennslu og rannsóknarvinnu, vísindalæsi og gagnatúlkun og kennslu fjölbreyttra nemendahópa.
Í könnun um sérhæfingu kennara kemur líka fram mikill landfræðilegur munur og að hlutfall kennara með náttúrufræðisérhæfingu er sérstaklega lágt á Suðurlandi og Austurlandi.
Námskeiðið, Náttúruvísindi sem virka á unglingastigi, er byggt upp til að leggja sitt á vogarskálarnar, til að svara þessari þörf.