Nineteen Eighty-Four - Bíótekið!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
sun. 13.09.2026 19:30
Nítjánhundruð áttatíu og fjögur, í leikstjórn Michael Radford, er áhrifamikil kvikmyndaaðlögun samnefndrar skáldsögu George Orwell.
Sagan gerist í alræðisríki þar sem Stóri bróðir fylgist með öllu og jafnvel hugsanir fólks geta talist glæpur. John Hurt fer með hlutverk Winston Smith, starfsmanns Sannleiksráðuneytisins sem fer að efast um kerfið og leitar að frelsi í ástarsambandi við Juliu, leikna af Suzönnu Hamilton.
Kvikmyndin er myrk og áleitin áminning um hættuna sem fylgir stjórnlausum völdum og afskræmingu sannleikans. Þótt sagan hafi verið skrifuð á fyrri hluta tuttugustu aldar hefur viðfangsefnið um eftirlit, áróður og frelsi sterka skírskotun í samtímann.
Sýnd í Bíótekinu sunnudaginn 13. september kl 19:30!
Flytjendur
-
BíótekiðKvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.
-
Kvikmyndasafn Íslands
Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.