Nýdönsk 40 ára afmælistónleikar
Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
lau 18. sep 2027 21:00
Hljómsveitin Nýdönsk fagnar 40 ára afmæli sínu á næsta ári
og verður öllu tjaldað til á þessum afmælistónleikum. Þeim til fulltingis
verður meðal annars frábær strengjasveit.
Frá því að Hólmfríður Júlíusdóttir varð landsmönnum kunn hefur sveitin sent frá
sér fjölda hljómplatna og ekki litið um öxl. Lög eins og Horfðu til himins,
Flugvélar, Frelsið og Fram á nótt skipa sérstakan stað meðal Íslendinga rétt
eins og síðari tíma smellurinn og lag ársins 2025, Fullkomið farartæki.
Nýdönsk samdi tónlistina við Gauragang Ólafs Hauks Símonarsonar og var með
eigin tónleikasýningu í Borgarleikhúsinu.
Að hljómsveit geti starfað í 40 ár á er sjaldgæft og til þess þarf ríka vináttu
og óslökkvandi áhuga á sjálfri tónlistinni. Nostradamus spáir glæsilegustu
tónleikum í sögu hljómsveitarinnar og að áhorfendur verði sem Nýr maður að þeim
loknum.