Nýdönsk
Hljómahöll | Stapi, Hjallavegur 2, 260 Njarðvík Kort
lau. 27.02.2027 20:00
Nýdönsk fagnar 40 ára afmæli á þessu ári og heimsækir Hljómahöllina af því tilefni. Skemmst er að minnast frábærra tónleika í húsinu í fyrra þar sem færri komust að en vildu.
Á síðasta ári kom út plata þeirra, Í raunheimum, sem inniheldur meðal annars stórsmellinn Fullkomið farartæki. Fáar ef nokkrar íslenskar hljómsveitir eiga jafn marga smelli og Nýdönsk og víst er að von er á góðu þegar piltarnir heimsækja Reykjanesbæ.
Hljómsveitina skipa þeir Björn Jörundur Friðbjörnsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm. Þeim til aðstoðar verða Guðmundur Pétursson, gítarleikari og Ingi Skúlason, bassaleikari.
🎟️ Miðasala hefst þann 1. september á slaginu kl. 10:00 á hljomaholl.is & tix.is
Flytjendur
-
Nýdönsk
Hljómsveit
-
Björn Jörundur
Framistaða hans í Ljósvíkingum vakti mikla athygli og kappinn er jafnvígur í leik og söng.
-
Daníel Ágúst
Nýdönsk and Gus Gus.
-
Jón Ólafs
Tónlistarmaður