Nýtt markaðsverkefni: Ísland í essinu sínu
mið 25. nóv 2026 12:00
Bústaðu viðburðinn!Markaðsstofa Norðurlands og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa á undanförnum mánuðum unnið að verkefni sem miðar að því að byggja upp aðdráttarafl og leggja grunn að nýrri markaðssókn í ferðaþjónustu. Verkefnið ber heitið Ísland í essinu sínu og nær yfir svæðið frá Hrútafirði austur í Fljót. Nánar um verkefnið og áherslur þess má lesa á verkefnasíðunni:
https://www.northiceland.is/is/mn/verkefni/ess
Nú er komið að næstu skrefum og því bjóðum við fyrirtækjum og öðrum hagaðilum á opinn kynningarfund þann 25. nóvember klukan 12. Farið verður yfir hvernig nýta má verkefnið og kynningarefni þess til að efla ferðaþjónustu á svæðinu og hvernig fyrirtæki geta tengt það við eigið markaðsstarf.
Við hvetjum öll áhugasöm til að mæta, kynna sér möguleikana og taka þátt í samtalinu um framhaldið.
Fundurinn fer fram á Teams og er skráning nauðsynleg:
https://www.northiceland.is/is/island-i-essinu-sinu-kynningarfundur