Óperudagar 2026: Hin magnaða rödd Margrétar
Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
lau 31. okt 2026 15:00
Rödd Margrétar Hrafnsdóttur er ein magnaðasta rödd sem við á Óperudögum höfum heyrt – dramatísk, „djúsí“ og fær um að senda rafmagnaða strauma um hvert það rými sem hún hljómar í.
Á þessum tónleikum kanna Margrét og Ástríður Alda, einn okkar allra færasti píanisti, dramatísk verk sem hæfa rödd Margrétar og hljómburði Norðurljósa einstaklega vel. Pálína Jónsdóttir leikstjóri tekur þátt í sköpuninni og saman teygja þær á hinu hefðbundna tónleikaformi, leika sér með rýmið og dramatíkina og skapa flæðandi tónleikhús þar sem rödd, tónlist og leikur renna saman.