Óperudagar 2026: Þunnt skæni á logandi vök
Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
lau 31. okt 2026 13:00
Kammeróperan Þunnt skæni á logandi vök á sér sögu.
Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi óperuna upprunalega við líbrettó ástralsks höfundar en hún var flutt fyrst í Reykjavík 2021 í miðjum faraldri og síðan í Ástralíu árið 2023. Verkið fjallaði á heimspekilegan og dramatískan hátt um skógarelda sem eru mikil ógn víða í Ástralíu.
Af ýmsum ástæðum var ákveðið að snúa óperunni að hluta til upp á íslenskan veruleika. Magnea J. Matthíasdóttir tók að sér að gera nýtt libretto, ljóðabálk. Eldtengingunni var haldið en ógnin hér á landi er ekki skógareldar heldur eldgos eins og fólkið á Suðurnesjum hefur orðið áþreifanlega vart við síðustu ár. Þannig að ljóðið fjallar núna bæði um eld úr iðrum jarðar og eld að ofan, svörtu sængina sem getur bæði verið kulnað hraun og brunninn skógur og land. Ljóðið er skrifað frá sjónarhorni lands og náttúru, Gaiu sjálfrar, hún lýsir endalokum og nýju upphafi. Hlustandanum er í sjálfsvald sett hvort hann sér mannkyn fyrir sér vera hluta af hinu nýja upphafi eður ei.
Óperan er í 8 köflum, mjög ólíkum og gerir gríðarlegar kröfur til einsöngvarans. Tónsvið er mjög stórt og söngvarinn þarf að ráða yfir allt frá örveikum söng til fulls styrks. Hallveig Rúnarsdóttir, ein okkar bestu sópransöngkvenna var flytjandi verksins í fyrra formi bæði hér heima og í Ástralíu og kammerhópurinn Camerarctica sem er skipaður hljóðfæraleikurum í fremstu röð tók þátt í flutningnum í Reykjavík árið 2022.
Í ágúst var kammeróperan flutt í gömlu, yfirgefnu síldartönkunum á Raufarhöfn, þar sem hrár efniviðurinn gaf upplifuninni nýja dýpt. Langt frá skógareldum og eldsumbrotum, en á sama tíma í hráu og áhrifamiklu umhverfi. Nú verður verkið flutt á Óperudögum í Hörpu, þar með kvikmynda- og ljósmyndasýning Ásdísar Thoroddsen skapar innblásna umgjörð utan um verkið.
Flytjendur:
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla
Bryndís Pálsdóttir, fiðla
Svava Bernharðsdóttir, víóla
Bryndís Björgvinsdóttir, selló
Ármann Helgason, klarinett
Eydís Franzdóttir, óbó