Opin hrekkjavökuæfing - öll velkomin
Skautahöllin í Laugardal, Múlavegur 1, 104 Reykjavík Kort
mið 4. nóv 2026 17:15
Bústaðu viðburðinn!Íshokkískóli SR verður í sannkölluðum hrekkjavökugír miðvikudaginn 4. nóvember kl. 17.15–08.00. ATH viðburður færður frá 31. okt. vegna listskautamóts í Skautahöllinni.
Öllum hressum krökkum á aldrinum 4–10 ára er boðið að koma og prófa íshokkí frítt. Krakkarnir eru hvattir til að mæta í hrekkjavökubúningum og/eða með andlitsmálningu.
Fálki, lukkudýr SR, mætir á svæðið og gefur öllum krökkunum íspinna.
Byrjað verður á léttum skautaæfingum og leikjum, en svo verða ljósin slökkt, diskóljósin gangsett, hræðileg tónlist sett í gang og hrekkjavökufjörið tekur við!
Öll velkomin! 👻🎃🏒