Opinn tími á Verkstæðinu
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
mán 19. okt 2026 16:00
Bústaðu viðburðinn!Verkstæðið Grófinni er opin alla mánudaga frá kl. 16:00 til 17:30 fyrir öll sem vilja kíkja við og eiga notalega stund. Aðra hverja viku kynnum við nýtt skapandi viðfangsefni í svokallaðri „smásmiðju“. Á öðrum mánudögum er boðið upp á "opna tíma" á Verkstæðinu. Þar má mæta og vinna að eigin verkefnum en einnig verður starfsmaður á staðnum til að svara spurningum og aðstoða við hvers kyns tæknileg mál, stór sem smá.
Opnir tímar eru hugsaðar fyrir þau sem langar að vinna við eða rifja upp ýmislegt sem tengist skapandi tækni á Verkstæðinu, m.a. þrívíddarhönnun, mynd-, tónlistar- eða hljóðvinnsluforrit.
Engin reynsla eða skráning er nauðsynleg, bara mæta!
Engin reynsla eða skráning er nauðsynleg, bara mæta!