Opinn tími á Verkstæðinu

Opinn tími á Verkstæðinu

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

mán 12. okt 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

Verkstæðið Grófinni er opin alla mánudaga frá kl. 16:00 til 17:30 fyrir öll sem vilja kíkja við og eiga notalega stund. Aðra hverja viku er boðið upp á "opna tíma" á Verkstæðinu. Þar má mæta og vinna að eigin verkefnum en einnig verður starfsmaður á staðnum til að svara spurningum og aðstoða við hvers kyns tæknileg mál, stór sem smá. Á öðrum mánudögum kynnum við nýtt skapandi viðfangsefni í svokallaða „smásmiðju“.

Opnir tímar eru hugsaðar fyrir þau sem langar að vinna við eða rifja upp ýmislegt sem tengist skapandi tækni á Verkstæðinu, m.a. þrívíddarhönnun, mynd-, tónlistar- eða hljóðvinnsluforrit.

Engin reynsla eða skráning er nauðsynleg, bara mæta!

Nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Gestsson, sérfræðingur í tónlistardeild

valgeir.gestsson@reykjavik.is