Alla mánudaga er boðið upp á „opna tíma“ kl. 16:00 til 17:30 á Verkstæðinu, tónlistar- og myndvinnsluveri á Borgarbókasafninu Grófinni.
Tímarnir eru hugsaðir fyrir öll sem vilja kíkja við, eiga notalega stund og vinna að eigin verkefnum tengdum skapandi tækni í t.d. þrívíddarhönnun, mynd-, tónlistar- eða hljóðvinnsluforritum, en einnig er starfsmaður á staðnum til að svara spurningum og aðstoða við hvers kyns tæknileg mál, stór sem smá.
Engin reynsla eða skráning nauðsynleg, bara mæta!
Annan hvern mánudag er boðið upp á kynning á nýju skapandi viðfangsefni í svokölluðum „smásmiðjum“.
Opinn tími á Verkstæðinu
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
mán 9. nóv 2026 16:00
Bústaðu viðburðinn!