Opnun | Safnverslunin í Hafnarhúsi

Opnun | Safnverslunin í Hafnarhúsi

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

fim 26. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Nú fögnum við því að safnverslun Listasafns Reykjavíkur hefur flutt sig um set í nýtt, rúmbetra og glæsilegra rými í Hafnarhúsi.

Af því tilefni bjóðum við þér að koma og gleðjast með okkur fimmtudaginn 26. nóvember kl. 17:00-19:00.

Í versluninni má finna fjölbreytt úrval af vönduðum og einstökum vörum, þar á meðal fágætar gersemar á borð við upplagsverk listamanna, afsteypur, hönnunarvörur, plaköt og spennandi listaverkabækur, auk fjölmargra gjafahugmynda fyrir listunnendur á öllum aldri.

Boðið verður upp á léttar veitingar, 15% afslátt af glæsilegum vörum, spennandi opnunartilboð og góða stemningu.

Fyrstu 20 viðskiptavinirnir fá veglegan gjafapoka í kaupbæti.

Frítt verður inn á sýningar safnsins á meðan á viðburðinum stendur.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og sýna ykkur nýja og glæsilega safnverslun.

Geggjuð tilboð, góðar veitingar og almenn gleði í Hafnarhúsi!