Opnunarhátíð Hamraborg Festival 2026 | Opening Ceremony
fös. 28.08.2026 18:00
🌸Verið velkomin á Opnunarhátíð Hamraborgarhátíðar föstudaginn 28. ágúst kl 18:00 á túninu fyrir aftan Gerðarsafn / við menningarhúsin!
Föstudagurinn verður stappfullur af mögnuðum viðburðum, gjörningum, sýningum og tónleikum!
Klukkan 18:00 opnum við hátíðina formlega á Listatúni og færum okkur svo inn í Salinn. Benni Hemm Hemm og Páll Óskar koma fram ásamt Kvennakórnum Bliku.
Allar listasýningar hátíðarinnar verða opnar - á Bókasafni, Náttúrufræðistofu, Polo Vape Shop, Sportsól, Krónunni og fleiri stöðum víðsvegar um Hamraborg! Kviss búmm bang verður með langtímagjörning á Bókasafninu frá 17-19 og gjörningahópurinn Limit Getaway kynnir sinn fyrsta viðburð af þremur sem fram fara um helgina, sem hefst á Visitor ferðaskrifstofunni.
Gjörningakvöld, partý og dj sett í Gerðarsafni um kvöldið! Verk eftir Silfrúnu Unu Guðlaugsdóttur, Lindy Lin, Sæborg í MRI (Michael Richardt og Egill Ásdísarson), og Juulius Vaiksoo ásamt Helenu Tõrva.
Krónikan verður opin allt kvöldið! DJ ÓK kveikir svo í dansgólfinu að gjörningum loknum.
Komdu og fagnaðu með okkur!
Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs. Þetta árið er hátíðin haldin í sjötta sinn og stendur hún yfir dagana 28. ágúst - 4. september en þá kveðjum við sumarið með líflegri dagskrá sem er yfirfull af listasýningum, gjörningum, vinnusmiðjum, tónleikum og öðrum listviðburðum. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og öllum opnir. Hátíðin er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið þar sem mörg verk bregðast við byggingarlist, sögu og hversdagslífi Hamraborgarsvæðisins. Hægt er að sjá ítarlega dagskrá á heimasíðunni okkar og sækja útprentað kort á sýningarstöðum yfir hátíðarvikuna.
Sjáumst í Hamraborg! 🌸🌸🌸
Hamraborg Festival er góðfúslega styrkt af: Kópavogsbæ, Myndlistarsjóði, Landsbankanum, Barnamenningarsjóði.
Flytjendur
-
Hamraborg FestivalHamraborg Festival er lifandi listahátíð í hjarta Kópavogs.
Hátíðin er haldin ár hvert í lok ágúst og markar þar með enda sumarsins með vikulöngum fögnuði listar og samfélagsins í Hamraborg.
-
Benni Hemm HemmEinstaklega sviðsframkoma, dansar á mörkum þess að vera band eða kór.
-
Páll ÓskarGleðipinni og skemmtikrafur. Fullur orku og réttsýni.
-
Kvennakórinn BlikaKvennakórinn Blika, Kópavogi
Kórstjóri : Margrét Eir
Formaður: Guðbjörg Eva Friðgeirsdóttir
-
DJ ÓKA DJ known for creating a relaxing and vibey atmosphere.
-
MEKÓ - Menning í KópavogiMEKÓ færir ykkur öflugt og lifandi menningarlíf í Kópavogi. -
KópavogsbærOpinber Facebook-síða Kópavogsbæjar. Hér miðlar bærinn upplýsingum um þjónustu, stjórnsýslu, viðburði, mannlíf og annað sem við kemur Kópavogi.