Dagskrá opnunarhátíðar Jóladalsins laugardaginn 28. nóvember
Kl. 15:00-17:00
Jólaföndursmiðja Þykjó í veitingaskálanum.
Rúningur í fjárhúsinu. Gestum gefst tækifæri til að fylgjast með og fræðast þegar kindurnar fá jólaklippinguna.
Kl. 16:00
Skemmtun á sviði
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts flytur nokkur lög.
Jólaatriði frá Sirkuslistafélaginu Hringleik.
Langleggur og Skjóða, systkini jólasveinanna, flytja leikþátt og kynna dagskrána.
Kl. 16:45
Skautasýning félaga í Skautafélagi Reykjavíkur (ef tjörnin í Fjölskyldugarðinum verður ísilögð).
Kl. 17:45
Bestu lög barnanna á sviði.
Opnunarhátíð Jóladalsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, Múlavegur 3, 104 Reykjavík Kort
lau 28. nóv 2026 15:00
Bústaðu viðburðinn!Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er kominn í jólabúning þar sem ótal jólaljós lýsa upp garðinn og skapa einstaka stemningu í skammdeginu. Garðurinn verður opinn alla virka daga frá kl. 10 til 17 og um helgar frá kl. 10 til 20 alla aðventuna.
Fyrstu þrjár aðventuhelgarnar verður sérstök jóladagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna. Á laugardögum verða skemmtilegir viðburðir fyrir alla aldurshópa en á sunnudögum verður notaleg aðventustemning með föndri og tónlist. Gestum gefst einnig kostur á að taka þátt í útieldun við opinn eld og njóta veitinga frá matarvögnum á svæðinu.
Jólaratleikur fyrir hressa krakka verður í gangi allan desember og hugrakkir gestir geta heimsótt jólaköttinn sem hefur komið sér fyrir í garðinum líkt og undanfarin ár. Hann heldur til í hryssingslegum kofa austast í Fjölskyldugarðinum.
Auk þess verður hefðbundin dagskrá í kringum dýrin, þar sem gestir geta fræðst um íbúa garðsins og notið samvista við þau í rólegu og hátíðlegu umhverfi.
Hefðbundinn aðgangseyrir gildir.