Opnunarhátíð Jóladalsins í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn, Múlavegur 2, 104 Reykjavík Kort
lau 28. nóv 2026 15:00
Bústaðu viðburðinn!🎄 Dagskrá opnunarhátíðar Jóladalsins 🎄
Laugardaginn 28. nóvember
Kl. 15:00-17:00
🎨 Jólaföndursmiðja Þykjó í veitingaskálanum.
🐑✂️ Rúningur í fjárhúsinu
Gestum gefst tækifæri til að fylgjast með og fræðast þegar kindurnar fá jólaklippinguna.
Kl. 16:00
Skemmtun á sviði
🎺🎶 Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts flytur nokkur lög.
🤹♀️✨ Jólaatriði frá Sirkuslistafélaginu Hringleik.
🎅🧑🎄 Langleggur og Skjóða, systkini jólasveinanna, flytja leikþátt og kynna dagskrána.
Kl. 16:45
⛸️❄️ Skautasýning félaga í Skautafélagi Reykjavíkur
(ef tjörnin í Fjölskyldugarðinum verður ísilögð).
Kl. 17:45
🎤🎵 Bestu lög barnanna á sviði.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er kominn í jólabúning þar sem ótal jólaljós lýsa upp garðinn og skapa einstaka stemningu í skammdeginu. Garðurinn verður opinn alla virka daga frá kl. 10 til 17 og um helgar frá kl. 10 til 20 alla aðventuna.
Fyrstu þrjár aðventuhelgarnar verður sérstök jóladagskrá í boði fyrir alla fjölskylduna. Á laugardögum verða skemmtilegir viðburðir fyrir alla aldurshópa en á sunnudögum verður notaleg aðventustemning með föndri og tónlist. Gestum gefst einnig kostur á að taka þátt í útieldun við opinn eld og njóta veitinga frá matarvögnum á svæðinu.
Jólaratleikur fyrir hressa krakka verður í gangi allan desember og hugrakkir gestir geta heimsótt jólaköttinn sem hefur komið sér fyrir í garðinum líkt og undanfarin ár. Hann heldur til í hryssingslegum kofa austast í Fjölskyldugarðinum.
Auk þess verður hefðbundin dagskrá í kringum dýrin, þar sem gestir geta fræðst um íbúa garðsins og notið samvista við þau í rólegu og hátíðlegu umhverfi. Hefðbundinn aðgangseyrir gildir.