Orkuöflun og orkusjálfstæði - Orkuskot

Orkuöflun og orkusjálfstæði - Orkuskot

Hafnarbyggð 4a, 690 Vopnafjörður, Iceland, Hafnarbyggð 4a, 690 Vopnafjörður, Iceland, 690 Vopnafjörður Kort

þri. 22.09.2026 12:00

Annað Orkuskot haustsins verður í Miklagarði á Vopnafirði í hádeginu þann 22. september.

Þar ræðir starfsmaður teymis orkuskipta og orkunýtni hjá Umhverfis- og orkustofnun um orkuöflun og orkusjálfstæði einstaklinga.

Teymi orkuskipta og orkunýtni spilar stórt hlutverk í að styðja við umskipti Íslands yfir í hreinni orkugjafa og minnka notkun á jarðefnaeldsneyti samhliða skynsamlegri nýtingu á orkuauðlindum landsins.

Erindi fundarins verður tekið upp og birt á miðlum Austurbrúar síðar í haust.

Flytjendur

  • Austurbrú
    Austurbrú
    Austurbrú stuðlar að jákvæðri þróun menntunar, menningar og atvinnuþróunar á Austurlandi. Austurbrú vinnur að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Austurlandi og veitir samræmda og þverfaglega þjónustu.