Komdu á Borgarbókasafnið Árbæ og búðu til skuggalega flottar hrekkjavökuskreytingar fyrir heimilið!
Við vinnum með svartan pappír, stensla og skæri til að skapa leðurblökur, drauga, köngulær og annað sem fær hroll til að læðast niður bakið. Þegar skreytingin er tilbúin er ekkert mál að hengja hana upp með kennaratyggjói eða límbandi og breyta heimilinu í sannkallaðan hrekkjavökuheim!
Leiðbeinandi verður á staðnum til að aðstoða eftir þörfum og allt sem þarf til föndursins verður til taks. Þátttakendum er einnig velkomið að koma með eigin efnivið eða áhöld ef þau vilja setja persónulegan svip á sköpunina.
Smiðjan hentar bæði fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin í fylgd fullorðinna sem geta aðstoðað.
Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund.
Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.
Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á:
Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar
Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar
Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Heiðrún G. Viktorsdóttir | sérfræðingur
heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavik.is
Partískreytingar fyrir hrekkjavökuna
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
þri. 13.10.2026 15:30