Persepolis - Föstudagspartísýning á Franskri kvikmyndahátíð!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
fös 22. jan 2027 21:00
Ung írönsk stúlka neitar að láta kúgun, trúarofstæki og strangar samfélagsreglur þagga niður í sér. Með húmor, óbilandi uppreisnaranda og Iron Maiden í eyrunum tekst hún á við lífið í skugga írönsku byltingarinnar. Pönk, pólitík og frelsi!
Ógleymanlegt meistaraverk Marjane Satrapi er sannkölluð uppreisnarveisla og því fullkomin föstudagspartímynd!
Við skálum fyrir frelsinu og franskri kvikmyndagerð á föstudagspartísýningu í tilefni Frönsku kvikmyndahátíðarinnar, 22. janúar 2027 kl 21:00!