Pétur og úlfurinn

Pétur og úlfurinn

Hof Menningarhús | Garún kaffihús, Strandgötu 12, 600 Akureyri Kort

lau. 29.08.2026 15:00

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands býður gestum Akureyrarvöku á töfrandi fjölskyldutónleika. Ævintýrið sígilda um Pétur og úlfinn er einstök leið til að kynnast hljóðheimi sinfóníuhljómsveitarinnar. Með litríkri tónlist eru áheyrendur leiddir inn í spennandi sögu sem höfðar jafn til barna og fullorðinna. Þannig opnar verkið dyrnar að heimi klassískrar tónlistar á heillandi og eftirminnilegan hátt.

Sögumaður er Margrét Sverrisdóttir.

Frítt er á alla viðburði Akureyrarvöku í Hofi.

Fylgstu nánar með dagskrá Akureyrarvöku í Hofi á mak.is

Flytjendur