Plötumarkaður Í Tónabíói
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort
lau 14. nóv 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Áttu of margar plötur? Auðvitað ekki. En kannski nokkrar sem langar að flytja að heiman.
Við höldum plötumarkað í Tónabíói þar sem tónlist skiptir um hendur og fólk segir „ég ætla bara aðeins að skoða“ með misgóðum árangri.
Komdu að kaupa, selja, skipta eða ræða af fullri alvöru hvort fyrsta pressan sé í raun betri. Það má líka koma með geisladiska og kassettur, ef fólk er svo brenglað.
Vínyl DJ-ar skiptast á að taka sett, plötuspilari með heyrnartólum bíður þeirra sem vilja hlusta áður en þeir falla í freistni og plötuþvottavél tekur við þeim sem hafa séð betri daga. Plötum, það er.
Söluborð fyrir seljendur — hver kemur með sína tónlist og eigin greiðslulausn. Áhugasamir eru beðnir um að senda skilaboð hér á facebook á gestgjafanna RVK Tónabíó eða dj presmach til að staðfestinga þáttöku.
Góðar plötur. Góðar samræður. Enn ein plata sem þú áttir alveg örugglega ekki fyrir og sem seljandinn sér eftir að láta frá sér.