Pottaplöntur-Auður allt árið

Pottaplöntur-Auður allt árið

Í streymi, , Reykjavík Kort

fim 22. okt 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

vefnámskeið

Langar þig að fylla heimilið af lífi, hlýju og fersku lofti?

Í haust verður notalegt námskeið um pottaplöntur þar sem við kynnumst því hvernig grænar plöntur geta umbreytt heimilinu — skapað meiri kósíheit, ró og bætt loftgæði með auknu súrefni og hreinsun andrúmsloftsins.

Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja efla plöntugleðina sína. Farið verður yfir:

• val á pottaplöntum

• umhirðu og staðsetningu

• birtu og vökvun

• hvernig plöntur skapa hlýlegt og lifandi heimili

• plöntur sem stuðla að betra lofti innandyra

Komdu og njóttu grænnar stemningar, innblásturs og notalegrar samveru í haust

Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur

Hvar og hvenær: 22. október klukkan 17:00-18:30

Verð: 16.900 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi