Púsl á alla kanta

Púsl á alla kanta

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

lau 14. nóv 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Að setja saman púsluspil er áhugamál sem flest stunda rólegheitum heima hjá sér, en samfélagið er ansi fjölbreytt. Sum kjósa að setja saman púsl með mörg þúsund bitum á meðan önnur láta sér nægja að púsla minni púsl. Með tilkomu hraðpúsls sem keppnisgreinar hefur flóran orðið enn fjölbreyttari.
Sama hvernig púslari þú ert, þá er hér tækifæri til að hitta aðra púslara, prófa eitthvað nýtt og eignast ný púsl.
Á viðburðinum verður:
·        Skiptimarkaður þar sem hægt er að kaupa notuð púsl eða skipta.
·        Hið íslenska púslsamband með kynningu á starfsemi sinni og hraðpúsli.
·        Hægt verður að grípa í púsl eða púslskák.
·        Happdrætti í gangi og dregið í lok viðburðar.
·        Hringrásarborðið þar sem hægt er að taka og/eða skilja eftir púsl eins og hver vill. Restin fer í Fríbúðina Gerðubergi.
Þeim sem hafa áhuga á að vera með borð á skiptimarkaðnum er bent á að takmarkað pláss er í boði og seljendur / bíttarar þurfa að skrá sig fyrirfram, með því að senda tölvupóst á berglindsh@gmail.com. Greiða þarf 1000 krónur til að taka frá borð sem verða endurgreiddar við mætingu.
Skipuleggjandi viðburðarins er Berglind S. Heiðarsdóttir, stjórnandi í Facebook-hópnum Púslarar.
Allir púslarar velkomnir, byrjendur sem lengra komnir!
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6250