Rafrænn kynningarfundur DriftEA og Ignite Nordic
Nýheimar þekkingarsetur, Litla brú 2, 780 Höfn Kort
fim 26. nóv 2026 15:00
Bústaðu viðburðinn!Fyrirtæki, frumkvöðlar og aðrir forvitnir athugið!
Sesselja Reynisdóttir, framkvæmdastjóri DriftEA, og Sigmar Bjarni Sigurðarson, leiðtogi Ignite Nordic, verða með rafrænan kynningar og fræðsluviðburð fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi.
Drift EA er nýsköpunar- og frumkvöðlasetur á Akureyri sem styður við þróun viðskiptahugmynda, frumkvöðlastarf og uppbyggingu fyrirtækja með ráðgjöf, fræðslu, vinnuaðstöðu, tengslamyndun og aðgengi að fjármögnun.
Kveikjan er íslenski hluti Ignite Nordic, norræns vettvangs sem tengir rótgróin fyrirtæki og opinbera aðila við frumkvöðla og sprotafyrirtæki. Fyrirtækin og opinberir aðilar koma með raunverulegar áskoranir úr rekstrinum og Kveikjan finnur frumkvöðla á Íslandi og á Norðurlöndunum sem geta leyst þær.
Þau munu kynna starfsemi DriftEA, nýsköpunarstarf á landsbyggðinni og samstarf frumkvöðla við rótgróin fyrirtæki.
Við hvetjum alla áhugasama til þess að mæta á viðburðinn, hvort sem er frumkvöðla eða fyrirtæki.