Rafvæðing smábáta- Orkuskot

Rafvæðing smábáta- Orkuskot

Tónspil, Hafnarbraut 22, 740 Neskaupstaður Kort

þri. 01.09.2026 16:00

Fyrsta Orkuskot haustsins verður í Tónspili í Neskaupstað þann 1. september kl: 16:00.

Þar ræðir Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdarstjóri Grænafls og fyrrverandi þingmaður um rafvæðingu smábáta.
Grænafl vinnur að orkuskiptum minni fiskiskipa. Í dag er fókusinn á rafvæðingu strandveiðibáta. Orkunotkun þeirra er þannig að hreint rafmagn hentar vel sem orkugjafi. Næstu skref verða rannsóknir og þróun á blöndu fleiri grænna orkugjafa, þar sem kannað verður hvaða lífrænu orkugjafar henta ásamt rafmagni til að keyra stærri báta.

Erindi fundarins verður tekið upp og birt á miðlum Austurbrúar síðar

Flytjendur

  • Austurbrú
    Austurbrú
    Austurbrú stuðlar að jákvæðri þróun menntunar, menningar og atvinnuþróunar á Austurlandi. Austurbrú vinnur að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Austurlandi og veitir samræmda og þverfaglega þjónustu.