RDF - EPICLOGUE

RDF - EPICLOGUE

Þjóðleikhúsið | Kassinn, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Kort

sun 15. nóv 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Í EPICLOGUE spretta fram rætur, sögur og frásagnir sem verða að nýjum goðsögum. Út frá hugmyndum um ósæranleika er hér skapað rými þar sem hinsegin líkömum leyfist að vera sterkir, sýnilegir og ráðandi. Í verkinu er því velt upp hvers það krefjist – jafnvel kosti – að eigna sér rými sem er gefið öðrum. Í EPICLOGUE ögrar listafólkið þröngsýnum viðhorfum gagnvart hinsegin líkömum og dregur fram hvað það þýðir að vera hinsegin í sís-heterónormatívu samfélagi.

Markmiðið með verkinu er að ljá hinsegin líkömum sýnileika sem við höfum sjálf aldrei upplifað. Um leið og við höfnum hlutverki hins auðsæranlega ímyndum við okkur veruleika þar sem viðtekin gildi hafa liðið undir lok. Við leitum nýrra möguleika þar sem það sem er mætir því sem hefði getað orðið.

Í EPICLOGUE sjáum við náin kynni þar sem líkaminn öðlast hugrekki og vilja með því að upplifa ást, væntumþykju og gagnkvæmt traust. Við helgum okkur ókönnuð svæði, í áþreifanlegu og tilfinningalegu landslagi þar sem líkamar sameinast og umlykja hvor annan, með öllu ósigrandi.


Køteren og Terrieren (NO/DK) er listrænt tvíeyki þeirra Bjørk-Mynte Paulse (hún) sem er dönsk listakona, búsett í Kaupmannahöfn, og Jonathan Ibsen (hann) sem er danskur listamaður, búsettur í Osló.

Listsköpun þeirra hverfist um að ögra og setja spurningarmerki við hið viðtekna. Með augum brúnnar trans konu og hvíts, gagnkynhneigðs karlmanns rannsaka þau veröldina sem við búum í, til þess að skilja og setja í samhengi ákveðnar áskoranir sem tengjast kynhlutverki, kynhneigð og sjálfsmynd. Með forvitni og óhamda nálgun að vopni leitast þau við að tengja, ögra og kveikja samtal. Þau notfæra sér dans til að sviðsetja veruleikann sem við lifum við; til að finna annars konar rými þar sem frásögn og framtíð getur undið fram á nýstárlegan hátt.

Þau hafa sérstakan áhuga á samruna þess sem er og þess sem hefði getað orðið. Í verkum sínum skoða þau hvernig nánar upplifanir og skilning má endurskapa með því að sniðganga viðteknar hugmyndir um tímann. Með því að afbyggja, endurbyggja og endurskrifa hið „kunnuglega“ reyna þau að skapa rými fyrir vangaveltur sem síðan taka á sig áþreifanlegt, líkamlegt form.

Þau hafa helgað sig listsköpun sem þorir að setja brýnustu málefni samtímans í öndvegi. Í verkum sínum reyna þau að brjóta niður múra og öðlast dýpri skilning á því flókna samspili þátta sem móta sjálfsmynd okkar og samfélag. Þau bjóða okkur að taka þátt í hugleiðingu og samtali um strúktúrana sem skilgreina okkur og hamla, í því augnamiði að opna á nýja möguleika.


Kóreógrafía: Køteren og Terrieren / Jonathan Ibsen og Bjørk-Mynte Paulse

Flytjendur: Jonathan Ibsen & Bjørk-Mynte Paulse

Leikmynd, búningar & ljós: Chrisander Brun

Tónskáld:: Fredrik Petrov

Dramatúrg: Sodja Lotker

Framleiðandi: Adam Manthey Steen

Alþjóðleg framleiðsla: StepTurnMove / Wim Casier

Meðframleiðendur: Bærum Kulturhus, DansIT & BIT teatergarasjen

Aðrir samstarfsaðilar: MARC, Dansens Hus med koreografilaberitoriet, Godsbanen med Åbne Scene, Stamsund Teaterfestival, Illlu-science and Art.

Þakkir til: MDT Stockholm


Stutt og styrkt af: The Norwegian Arts Council, The Danish Arts Foundation, Fritt Ord, Oslo kommune, FFUK, Augustinus Fonden, Nordic Culture Fond & PAHN

Inniheldur nekt og hentar ekki börnum.

Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á

https://www.reykjavikdancefestival.com/