RDF - Ösku(fj**dans)buska
Þjóðleikhúsið | Kjallarinn, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Kort
lau 14. nóv 2026 18:00
Ævintýri, ballett-exorcismi, uppistand, píanótónleikar og hreinsunareldur.
Cinde (f******) rella, eða Ösku fjandans buska, eftir Ernu Ómarsdóttur, Höllu Ólafsdóttur og Sögu Kjerúlf Sigurðardóttur er verk í vinnslu við tónlist Prokofievs.
Á sviðinu eru þrír dansarar og tveir píanóleikarar sem leiða okkur inn í óreiðukennda leit að von á meðan við elskum að hata að vera þvinguð í einvíð form. Eða skó.
Hér er gerð tilraun til að miðla sögunni út frá sjónarhorni stjúpsystra Öskubusku. Þær bjóða heim í Þjóðleikhúskjallarann sem dansandi sögumenn og færa okkur ævintýrið þar sem grimmd, fegurð, hégómi, húmor og örvænting hinnar ófullkomnu mannssálar birtast.
Ösku(f******)buska býður áhorfendum inn í heim þar sem erfiði og alsæla næra hvort annað, áreynsla skapar fegurð og myrkur ævintýrisins er jafn mikilvægt og ljós þess.
Í grunninn er Cinde(f****)rella fjörug og óstýrilát blanda af ballett-exorcisma og píanókonsert þar sem hið kunnuglega ævintýri þjónar sem hlið inn í eitthvað framandi, myrkara og mannlegra.
Halla Ólafsdóttir er danshöfundur og dansari sem útskrifaðist úr mastersnámi í kóreógrafíu við SKH (sem áður hét DOCH) og úr dansaranámi við Balettakademien í Stokkhólmi. Samruni há- og lágmenningar er Höllu huglægur í listrænni vinnu og er einkennandi í verkum hennar. Hún notast oft við þekkt minni úr list, dægurmenningu og dansi og rannsakar hvað gerist þegar sett er í nýtt samhengi. Halla hefur sýnt eigin verk víða um Svíþjóð og á alþjóðlegum vettvangi. Meðal verka hennar eru Romeo & Julia-lotan (2018–2024), unnin með Íslenska dansflokknum, Ballet Basel og Gertnärplatsteater, Sylph(2023) með Cullberg, Beauty & The Beast(2011–2025), Bitchcraft(2017–2025) og The Knife(2013-2014).
Erna Ómarsdóttir er íslenskur danshöfundur og dansari sem útskrifaðist frá P.A.R.T.S. (Performing Arts Research and Training Studios) árið 1998. Í verkum sínum kannar hún öfgafulla líkamlega tjáningu, raddbeitingu og hrátt tilfinningalegt ástand í gegnum það sem hún kallar „Ballet Exorcism“-aðferðafræðina. Hún hefur sýnt og flutt verk sín víða á alþjóðavettvangi og farið í umfangsmiklar sýningarferðir um Evrópu og víðar um heim.
Meðal verka hennar eru Romeo & Julia- lotan(2018–2024), We Saw Monsters(2021), Sacrifice(2017), samstarfsverkefni með Matthew Barney, Gabríelu Friðriksdóttur og Ragnari Kjartanssyni, Dies Irae(2017), unnið með Gabríelu Friðriksdóttur, og IBM 1401 – A User’s Manual(2006), unnið með Jóhanni Jóhannssyni.
Saga Kjerúlf Sigurðardóttir er sviðslistakona sem fæst jöfnum höndum við samsköpun, kóreógrafíu og hlutverk dansarans. Hún nam dans og kóreógrafíu við ArtEZ listaháskólann í Hollandi, lauk síðar BA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands og MFA-gráðu í sviðslistum frá Listaháskóla Íslands 2017. Auk þess að leiða eigin verkefni sem danshöfundur hefur hún starfað sem meðhöfundur og flytjandi í fjölda verkefna með sviðslista- og gjörningahópunum Marmarabörnum, 16 elskendum, Íslenska dansflokknum, The Post Performance Blues Band, Ernu Ómarsdóttur & Shalala, Gjörningaklúbbnum o.fl.
Kóreógrafía og leikstjórn: Erna Ómarsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Saga Kjerúlf Sigurðardóttir
Dansarar: Erna Ómarsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Saga Kjerúlf Sigurðardóttir
Hljóðfæraleikur: Erna Vala Arnardóttir og Romain Þór Denuit
Tónlist: Sergei Prokofíev