Retro Stefson 20 ára
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Kort
fim. 17.12.2026 19:30
Retro Stefson þriggja daga afmælisveisla!
Austurbæjarbíó: 17. 18. og 19. desember 2026
Miðasala er í fullum gangi á STUBB
Retro Stefson er 20 ára í ár. Í tilefni af því heldur hljómsveitin þriggja daga afmælisveislu 17. 18. og 19. desember í Austurbæjarbíó við Snorrabraut. Miðasala hefst í stubb appinu og á stubb.is miðvikudaginn 10. júní kl. 11.
Í þessari þriggja daga afmælisveislu mun Retro Stefson gera ferlinum rækileg skil með þeim hætti sem hljómsveitinni einni er lagið. Gestir troða upp í bland við ýmsar óvæntar uppákomur.
Austurbæjarbíó varð fyrir valinu til að mynda þétta og sveitta stemmingu en líka til að sækja í ræturnar. Retro Stefson fæddist jú bara hinum megin við Snorrabrautina í Austurbæjarskóla.
Þetta verður þétt, sveitt en umfram allt ógeðslega skemmtilegt! Dönsum saman og fögnum Retro Stefson á þessum tímamótum!
⭐️ LANGAR ÞIG AÐ VINNA MIÐA? ⭐️
Skráðu þig á póstlistann okkar og þú gætir unnið miða fyrir tvo!
Við drögum ÞRJÁ HEPPNA þann 25. júní!
Þú skráir þig hér 👉🏼 https://mailchi.mp/926ab3177316/pstlistaksrning-v3
Flytjendur
-
Retro StefsonPerformer from Iceland