Rithöfundalest(ur) 2026 - Bókahátíð í Neskaupstað

Rithöfundalest(ur) 2026 - Bókahátíð í Neskaupstað

Tónspil, Hafnarbraut 22, 740 Neskaupstaður Kort

lau 28. nóv 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Rithöfundalestin stoppar í Neskaupstað.

Í ár verða eftirtaldir höfundar með í för: Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir. Einnig lesa upp Leifur Helgi Konráðsson og Ína Dagbjört, fyrir hönd systur sinnar Stefaníu.

9. bekkur reiðir fram veitingar í boði Egils rauða.

Frítt inn og bækurnar til sölu á staðnum.

Rithöfundalestin 2026 – á ferð um Austurland 26.–29. nóvember

Árleg ferð Rithöfundalestarinnar um Austurland verður farin dagana 26.–29. nóvember. Í ár verða eftirtaldir höfundar með í för: Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir.

Karólína Rós Ólafsdóttir, Leifur Helgi Konráðsson, Sveinn Snorri Sveinsson, Tinna Guðmundsdóttir, Ína Dagbjört Gísladóttir f.h. Stefaníu Guðbjargar Gísladóttir, Adda Sigurjóns og Særún Hlín Laufeyjardóttir bætast í hópinn á ákveðnum stöðum.

Lesendum á Austurlandi gefst hér einstakt tækifæri til að kynnast áhugaverðum jólabókum frá fyrstu hendi höfundanna sjálfra og taka þátt í jólabóka-samræðunni á Bókahátíðum um allt Austurland. Á hverjum viðkomustað verða kynntar bækur höfunda sem koma fljúgandi og hinna sem eru á staðnum, bækur sem tengjast Austurlandi á einn eða annan hátt. Hægt verður að kaupa bækur á staðnum og jafnvel fá áritun. Höfundar heimsækja einnig skóla og dvalarheimili aldraðra á yfirferð sinni og boðið upp á ritsmiðjur fyrir börn og fullorðna.

Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og Menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.

Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Nestaks, Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, Bílaleigu Akureyrar, Gistihússins á Egilsstöðum og bókaforlaganna Benedikts, Forlagsins, Bókabeitunnar og Orðs og lystar.

Verið öll velkomin! Ókeypis er inn á alla viðburði. Viðburðir fara fram á íslensku.

Nánari upplýsingar um viðburðina má finna á Facebook-síðum samstarfsaðilanna, á East.is og Skriduklaustur.is

Dagskrá Rithöfundalestarinnar 2026

Miðvikudagur 25. nóvember

• kl. 15:00 – Reyðarfjörður: Ritsmiðja barna, Bókasafni Reyðarfjarðar

• kl. 17:00 – Fáskrúðsfjörður: Ritsmiðja barna, Bókasafni Fáskrúðsfjarðar

Fimmtudagur 26. nóvember

• Kl. 16:00 – Vopnafjörður: Barna- og ungmennaupplestur Bókasafni Vopnafjarðar

• Kl. 20:00 – Vopnafjörður: Bókahátíð, Kaupvangi

Föstudagur 27. nóvember

• Kl. 16:30 – Djúpivogur: Bókahátíð, Faktor Brugghúsi

• Kl. 20:00 – Fáskrúðsfjörður: Bókahátíð, Franska safninu

Laugardagur 28. nóvember

• Kl. 13:00 – Neskaupstaður: Barna- og ungmennaupplestur, Tónspili.

• Kl. 14:00 – Neskaupstaður: Bókahátíð, Tónspili

• Kl. 17:00 – Reyðarfjörður: Hernámsæskan – bókarkynning, Stríðsárasafninu

• Kl. 20:00 – Seyðisfjörður: Bókahátíð, Skaftfelli

Sunnudagur 29. nóvember

• kl. 11:00 – Egilsstaðir: Barna- og ungmennaupplestur, Bókasafni Múlaþings Egilsstöðum

• kl. 13:00 – Fljótsdalur: Grýlugleði og jólakatta-ritsmiðja

• Kl. 15:00 – Fljótsdalur: Bókahátíð í beinu streymi, Skriðuklaustri