Rithöfundarheimsókn | Kristín Svava Tómasdóttir
Safnahúsið Ísafirði, Eyrargata, 400 Ísafjörður Kort
þri 10. nóv 2026 16:30
Bústaðu viðburðinn!Kristín Svava segir frá bók sinni, Fröken Dúllu, en bókin er ævisaga Jóhönnu Knudsen (1897-1950). Jóhanna er þekktust fyrir störf sín fyrir lögregluna í Reykjavík á árum síðari heimsstyrjaldar en áður hafði hún starfað í mörg ár sem hjúkrunarkona, þar á meðal á sjúkrahúsinu á Ísafirði, þar sem Safnahúsið er nú.
Í bókinni leitast Kristín Svava við að skilja umhverfið sem Jóhanna spratt úr og það sem knúði hana áfram.
Verið velkomin!
Um höfundinn:
Kristín Svava Tómasdóttir er sagnfræðingur og skáld. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ævisöguna Fröken Dúlla, Fjöruverðlaunin fyrir Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 og Viðurkenningu Hagþenkis fyrir Stund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar. Hún er einnig meðal höfunda bókanna Duna – saga kvikmyndagerðarkonu og Konur sem kjósa – aldarsaga. Kristín Svava hefur jafnframt sent frá sér fjórar ljóðabækur og unnið fjölbreytt störf á sviði textagerðar, ritstjórnar, kennslu og sýningagerðar.