Rökkursöngur steinanna

Rökkursöngur steinanna

Lystigarðurinn, Akureyri, Eyrarlandsvegur 30, 600 Akureyri Kort

fös. 28.08.2026 21:10

Rökkursöngur steinanna

Páll frá Húsafelli leikur á steinhörpu á Rökkurró

Páll Guðmundsson frá Húsafelli hefur um áratugaskeið unnið bæði að myndlist og tónlist og hafa steinar úr umhverfi hans spilað stórt hlutverk í báðum listformum.

Steinharpan, sem Páll smíðaði sjálfur úr steinum úr gili í landi Húsafells þar sem hann býr, er einstakt hljóðfæri og ætlar hann nú að leika á hana fyrir Akureyringa, ásamt öðrum hljóðfæraleikurum. Hljómsveitarstjóri er Hilmar Örn Agnarsson.

Daginn eftir, 29. ágúst, opnar í Listasafninu á Akureyri samsýningin Í snertingu, þar sem Páll sýnir verk sín, m.a. úr steini, ásamt Lene Zachariassen og færeyska listamanninum Maríu Tórgarð. Sýningin opnar kl. 15 og þar sem einnig verður tónlistaratriði sem enginn ætti að missa af!

Flytjendur