Røst x Katla
Fríkirkjan í Reykjavík, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Kort
lau 10. okt 2026 17:00
Røst x Katla
Røst x Katla tvinna saman norrænar raddir frá Íslandi og Danmörku.
Røst er rytmískur kór frá Kaupmannahöfn, hann telur 30 söngvara í sjö röddum sem leggja áherslu á hljómburð, jafnvægi og tjáningu. Unnið er með sviðsetningu og líkamsáslátt til að skapa fjölbreyttan hljóm og sjónræna upplifun.
Kvennakórinn Katla samanstendur af tæplega 80 konum sem koma úr ýmsum áttum og eiga það sameiginlegt að njóta söngs og sköpunar með hugrekki og kraft að leiðarljósi. Kórinn tekst óhikað á við fjölbreyttan tónlistarstíl og fer ótroðnar slóðir í útsetningum og sviðsframkomu.
Tveir kórar x tvö lönd = endalaus orka.