Sagnavaka

Sagnavaka

Ægir bar, Laugavegur 2, 101 Reykjavík Kort

lau 16. jan 2027 21:00

Bústaðu viðburðinn!

Þjóðdansafélag Reykjavíkur heldur Sagnavöku á Ægi 101, Laugaveg 2, 101 Reykjavík, þann 16. janúar kl. 21:00.

Á Sagnavöku eru fornkvæðin sungin og vikivaki stiginn. Á hverri vöku er einn sagnadans tekinn fyrir, texta og nótum er deilt hér á viðburðinum svo fólk geti lært kvæðið.

Þemakvæðið verður kynnt síðar.

Sönglagið verður kynnt síðar.

Við hvetjum fólk eindregið að mæta með skotthúfur. Uppskriftir að skotthúfum er hægt að nálgast hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands: https://www.heimilisidnadur.is/

Viðburðurinn er öllum sem aldur hafa að sækja Ægi 101 opinn og við hvetjum fólk að styðja við Ægi 101 og versla duglega.

Sagnavaka er mánaðarlegur viðburður á vegum Þjóðdansafélags Reykjavíkur.

Viðburðurinn er í umsjá Atla Freys Hjaltasonar, Elizabeth Katrínar Mason, Emils Baur, Giorgia Sottotetti, Karls Friðriks Hjaltasonar, Kára Pálssonar og Þorsteins Björnssonar.

Viðburðurinn er ávallt haldinn annan laugardag mánaðar kl. 21:00, nema annað sé tekið fram og auglýst.

Endilega fylgið Þjóðdansafélagi Reykjavíkur hér á Facebook fyrir upplýsingar um starf okkar og viðburði.