Sagnavaka
Ægir bar, Laugavegur 2, 101 Reykjavík Kort
lau 19. des 2026 21:00
Bústaðu viðburðinn!Þjóðdansafélag Reykjavíkur heldur Sagnavöku á Ægi 101, Laugaveg 2, 101 Reykjavík, þann 19. desember kl. 21:00.
Á Sagnavöku eru fornkvæðin sungin og vikivaki stiginn. Á hverri vöku er einn sagnadans tekinn fyrir, texta og nótum er deilt hér á viðburðinum svo fólk geti lært kvæðið. Í desember vaninn þó að hafa ekki þemakvæði heldur syngja úrval jólasöngva.
Við hvetjum fólk eindregið að mæta með skotthúfur. Uppskriftir að skotthúfum er hægt að nálgast hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands: https://www.heimilisidnadur.is/
Viðburðurinn er öllum sem aldur hafa að sækja Ægi 101 opinn og við hvetjum fólk að styðja við Ægi 101 og versla duglega.
Sagnavaka er mánaðarlegur viðburður á vegum Þjóðdansafélags Reykjavíkur.
Viðburðurinn er í umsjá Atla Freys Hjaltasonar, Elizabeth Katrínar Mason, Emils Baur, Giorgia Sottotetti, Karls Friðriks Hjaltasonar, Kára Pálssonar og Þorsteins Björnssonar.
Viðburðurinn er ávallt haldinn annan laugardag mánaðar kl. 21:00, nema annað sé tekið fram og auglýst.
Endilega fylgið Þjóðdansafélagi Reykjavíkur hér á Facebook fyrir upplýsingar um starf okkar og viðburði.