Saman eða sundruð? Vinnustofur um menntun og félagslega þátttöku barna og ungmenna með flóttabakgrun
Saga - Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Hagatorg 1, 107 Reykjavík Kort
þri. 29.09.2026 12:30
Saman eða sundruð? Vinnustofur um menntun og félagslega þátttöku barna og ungmenna með flóttabakgrunn.
Menntavísindasviði Háskóla Íslands, 29. september 2026 kl. 12.30-17.
Í vinnustofunum verður fjallað um helstu niðurstöður úr rannsóknaverkefninu Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og -ungmenna á Íslandi og hvernig þær geta gagnast vettvangi.
Markmið rannsóknarverkefnisins Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og -ungmenna á Íslandi (ESRCI) er að rannsaka með gagnrýnum hætti þátttöku flóttabarna og -ungmenna á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, skipulag náms þeirra og hvernig hugað er að vellíðan þeirra í félagslegu og námslegu umhverfi.
Þátttakendur í ESRCI verkefninu eru flóttabörn og -ungmenni frá Sýrlandi og Írak af ólíku kyni og á mismunandi aldri. Einnig foreldrar þeirra sem hafa fjölbreytta menntun og félags- og efnahagslega stöðu, svo og kennarar, skólastjórar, og námsráðgjafar barnanna þar sem við á, í leik-, grunn- og framhaldsskólum, starfsfólk sveitarfélaga og sjálfboðaliðasamtök í nærsamfélögum þeirra.
Áherslur vinnustofanna:
Samtal um ávinning niðurstaðna fyrir starfsfólk á vettvangi skóla og sveitarfélaga, svo og fræðasamfélagið.
Samtal um hagnýt verkefni og aðferðir sem styðja við farsæla móttöku og menntun barna og ungmenna með flóttabakgrunn í skóla-, frístunda- og félagsstarfi.
Samtal um lausnir sem hafa reynst vel í vinnu með börnum með flóttabakgrunn.
Markhópur:
Vinnustofurnar eru ætlaðar starfsfólki skóla- og frístundastarfs, svo og félagsþjónustu, sem og öðrum sem vinna með börnum og fjölskyldum með flóttabakgrunn.
Nánari upplýsingar um rannsóknarverkefnið: https://esrci.hi.is/is/forsida-islenska/
Flytjendur
-
Menntavísindasvið HÍUmsóknarfrestur um framhaldsnám er til 15. apríl og grunnnám og viðbótardiplómur til 5. júní.