Samband eignastýringar og aðstöðustjórnunar
þri 13. okt 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Aðstöðustjórnun og eignastýring hafa lengi þróast í aðskildum fögum — með ólíkum aðferðum og forgangsröðun — þrátt fyrir að bera í reynd sameiginlega ábyrgð: að tryggja að hið byggða umhverfi virki á öruggan, skilvirkan og áreiðanlegan hátt. Þessi aðgreining hefur skapað sóun, óhagkvæmni og glötuð tækifæri fyrir eigendur og rekstraraðila fasteigna.
Í nýrri bók sinni, Facility Asset Management - Performance, Risk & Value, kynna höfundarnir Duncan Waddell og Brian Atkin hugtakið Facility Asset Management (FAM) — samþætta nálgun sem sameinar bestu starfshætti aðstöðustjórnunar og eignastýringar til að hámarka virði, lágmarka áhættu og styðja stefnumótandi ákvarðanatöku.
Brian Atkin er einn virtasti sérfræðingur heims á þessu sviði. Á fundinum fer hann yfir helstu niðurstöður bókarinnar og svarar meðal annars þessum spurningum:
- Hvers vegna er samþætting aðstöðustjórnunar og eignastýringar orðin nauðsynleg?
- Hvernig geta gögn og tækni breytt mannvirkjum úr viðbragðsdrifnu umhverfi í fyrirbyggjandi og virðisskapandi kerfi?
- Hvernig geta leiðtogar í aðstöðustjórnun skapað raunverulegt virði fyrir sínar skipulagsheildir?
Fundurinn er kjörinn fyrir stjórnendur og sérfræðinga í aðstöðustjórnun, eignastýringu, rekstri fasteigna og sjálfbærni sem vilja heyra beint frá einum helsta hugsuði greinarinnar hvernig þessi nálgun getur nýst í íslensku samhengi - og fá um leið tækifæri að spyrja Brian spurninga.