Samhengi - Guðmundur Steinn Gunnarsson

Samhengi - Guðmundur Steinn Gunnarsson

Tónlistardeild Listaháskóla Íslands, Skipholt 31, 105 Reykjavík Kort

fös 9. okt 2026 12:15

Bústaðu viðburðinn!

Fyrirlestrarröðin Samhengi býður velkominn Guðmund Stein Gunnarsson föstudaginn 9. október með fyrirlesturinn „Hugleiðingar um vanamyndanir í tónlist“ þar sem Guðmundur Steinn mun fjalla um sínar tónsmíðaaðferðir og hugmyndir almennt. Míkrótóna, hljóð, þýðanleiki þeirra, þolmörk og þröskuldar verða meðal umfjöllunarefna, hvernig hávaði getur tekið á sig mynstur og orðið allt að því merkingarbær. Hvernig mynstur geta dansað á mörkum merkingarleysi og skiljanleika á sama tíma.Hreyfinótur og tjáskiptamynstur fyrir flæðandi hrynjandi verða jafnframt á dagskrá. Endurtekningin og undantekningin, vanamyndanir og skynjun á lögun þess loðna og óljósa, fegurð í grófum og hversdagslegum hlutum

Viðburðurinn er öllum opinn.