Samhjól fyrir konur og kvár með Júlíu Odds

Samhjól fyrir konur og kvár með Júlíu Odds

Lauf Cycles, Grandagarður 1B, 101 Reykjavík Kort

sun 27. sep 2026 11:00

Júlía Odds hjólar með Lauf Cycles, sunnudaginn 27. september kl. 11.00 og eru konur og kvár velkomin með! Við förum af stað frá Lauf Cycles, Grandagarði 1b og endum á sama stað í kaffi og kruðeríi.

Tveir hringir verða í boði, stærri fyrir reyndari og styttri fyrir þau sem kjósa það. Hjólað verður á léttum spjallhraða og verður engin skilin eftir.