Scott McLemore‘s Multiverse - Múlinn jazzklúbbur

Scott McLemore‘s Multiverse - Múlinn jazzklúbbur

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið 21. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 21. október kl. 20:00 í Kaldalónssal, Hörpu. Á tónleikunum kemur hljómsveitin Multiverse sem er kvartett trommuleikarans og tónskáldsins Scotts McLemore. Með honum leika Andrés Þór á gítar og pedal steel, Hilmar Jensson á gítar og Nicolas Moreaux á kontrabassa. Efnisskráin er öll frumsamin, laglínudrifin tónlist sem gefur spunanum lausan tauminn. Gítararnir tveir kallast á og vefa saman ólíka hljóðheima, og sveitin fer sínar eigin leiðir hverju sinni. Undanfarið hefur Andrés Þór lagt sífellt meiri áherslu á pedal steel-gítarinn, sem ljær tónlistinni draumkenndan og síbreytilegan blæ og teygir hljóm sveitarinnar í nýjar áttir.

Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í mðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu